Jeee minn eini!
Vá hvað það er mikið búið að ske
undanfarið!
Mín átti afmæli þann 31.maí
síðastliðinn, og vildi svo einkennilega til að foreldrar mínir og
systur mínar þrjár voru öll stödd í bænum í skólaferðalagi þannig
að mér fannst ég hálfpartinn yfirgefin. En svo var nú aldeilis
ekki! Ég fékk frábært veður þennan dag, þannig að mín skellti sér
bara í stutt gallapils og bol, tók rölt um bæinn og endaði í
heimsókn hjá Önnu frænku sem tók mig að sér þennan dag
Hun var svo góð að hún bakaði pönnsur og síðan sátum við
bróðurhluta dagsins úti á palli í sól og steik í sólbaði að
spjalla. Það gæti ekki hafa orðið meira notó!
Um kvöldið var síðan brunað inn í Reykjó
og haft það hrikalega notó með Garpinn og svo fékk maður ekki
leiðinlega heimsókn frá draumaprinsinum 
Jamm, þið lesið rétt! Ég held bara að ég
geti alveg sagt ykkur það að ég hef aldrei verið hamingjusamari! Ég
hef seinustu daga svifið um eins og lítið fiðrildi- eða þannig er
tilfinningin amk, og get ég fullyrt að svona hefur mér ekki liðið
áður! Maður kann bara ekkert á þetta, hehe.. þannig að maður
er pínu kjánalegur á köflum. Ég er nu ekkert vön því að deila
svona, en það er kannski bara útaf því að maður hefur aldrei hitt á
þann eina rétta sem maður er virkilega tilbúinn til að segja
almennilega frá.. út frá þessu vonar maður amk það besta, og er ég
nokkuð vongóð um þetta allt saman 
Helgin var síðan tekin með suddalegu
trompi, þar sem maður djúsaði á föstudaginn, laugardaginn og
sunnudaginn! Úff, það er langt síðan maður tók 3 kvöld um
sjómannadagshelgi, og tekur svona vel á því í þokkabót!! Fór
reyndar ekki á ballið á föstudeginum, heldur tók bara rúnt með
Söndru og Friðgeiri, en djúsaði bara á rúntinum
Lofa ég ekki
bara góðu, heheh!
Ég fékk að vera 3ja hjólið með
skötuhjúunum Söndru og Geira um helgina... það var alveg rosa fínt!
Þau eru svo mikil krútt, þannig að það er alveg ótrúlega gaman að
fylgjast með þeim! Við vorum mikið saman, og fékk ég meira að segja
að kúra hjá þeim á sunnudaginn fyrir ball! Heheh, það var svolítið
skondið, en við erum öll svo libó a þessu. Öll ein familía. Ég var
alveg rosalega glöð að Sandrinan mín kæmi vestur, því það er alveg
ótrúlegt hvað ég hef saknað skvísunnar! Við erum svo agalega
tengdar!
Ballið á laugardeginum var mjög
skemmtilegt. Ég dansaði samt rosalega lítið og tíminn flaug þvílíkt
hratt! Allt í einu var staðnum bara lokað og við tróðum okkur í
party til hljómsveitargauranna. Við( Sirry, Halli og ég) vorum rétt
ný komin þegar öllum var ruslað út, og það þýddi sko ekkert að
segja “Atli minn” hehe.. (smá einkahúmor) ... Sandra, Friðgeir og
fleiri komust ekki einu sinni inn í partyið, hehehe! Við gátum þó
chillað e-ð þarna fyrir utan, en þá voru flestir orðnir VEL
sjúskaðir! Þá var líka kominn tími til að hunskast heim, og ég get
sko fullyrt það, að ég labbaði “götuna endalausu” þennan morguninn-
mér sem fannst hún svo stutt þar sem ég horfði eftir henni
endilangri! Dísús hvað maður var algerlega búinn í líkamanum á
endastöðinni!
Sunnudagurinn var helvíti erfiður! Mikil
þreyta og þunnheit á köflum. En eftir leggjuna um kvöldið var maður
meira en game í ballið með á Móti sól... Það var sturtað í sig
áfengi eftir að maður sjænaði sig til og mamma keyrði aðal
liðið á ball. Að sjálfsögðu kom kellan líka með, enda ekki annað í
boði þegar svona hljómsveit er á svæðinu!
Pinnahælarnir á skvísu-skónum voru í
rústi eftir allt danseríið þarna, og má ég því skella þeim í
viðgerð nuna, þar sem það eru bara naglar eftir 
Amma hans Halla sótti okkur á ballið, og
fékk vinur Halla far..hún Sigga Páls tróð sér svo líka frammí. Ég
get svo svarið það, að ég hef ekki lent í skemmtilegri bílferð!!!!
Sigga reitti af sér lífsreynslusögurnar, sem voru í “blárri
kantinum” og maður roðnaði alveg niður í rass við að hlusta á
hana. Enda ekki skrýtið líka, þar sem maður hló svo rosalega
að það runnu bara tár! Til að þið getið gert ykkur grein fyrir
innihaldinu í sögunum er hægt að segja nokkur stykkorð:
Kitlipíku-leikur, g-strengs kaup, afmeyjun og fleira í þessum dúr!
Sem sagt algjört snilldar far þarna!
Mánudagurinn var alveg drullu þreyttur!
Ég var dauð til hálf 2, sem hefur sko ALDREI gerst áður! Maður fékk
smá samviskubit að vera ekki mætt í vinnuna þarna, en mér datt bara
ekki í hug að ég gæti sofið svona! Sem betur fer vaknaði ég
eitur-hress, og var engin þynnka né pirringur þennan “morguninn”
eins og morguninn áður.
Kvöldið var svaka kósý, horfðum á video,
fórum í pottinn og svo meira video.. BARA lúxux á lífinu
ekkert
skrýtið að maður sé e-ð happý happý!
Þriðjudagurinn var svo ennþá þreyttari
en mánudagurinn! Ég var bara ekki að meika það að halda augunum
opnum, og svo var mér óglatt... maður var greinilega að jafna sig í
líkamanum eftir helgina.
Um kvöldið var okkur Halla svo boðið í
mat hjá Kristínu Brynju og Ingþór.. Fengum svaka góðan fiskrétt í
ofni! Nammi namm, fæ bara vatn í munninn við tilhugsunina! Það var
mjög næs... Var reyndar agalega stressuð fyrr um daginn yfir að
hafa lofað mér í að mæta, en það var síðan ekkert mál...
Slúttuðum svo kvöldinu með video og
nammi heima hjá mér, en þreytan var alveg að fara með
mann!
Í dag er eg svo búin að vera voða
“lítil” e-ð, þar sem allir eru farnir aftur suður... það er því
ansi tómlegt! EN það er bara fram á sunnudag, þar sem maður skellir
sér örstutt í bæinn þá!
Tíminn líður hratt þessa dagana, þannig
að maður á ekkert að vera að væla yfir því.
Til að toppa daginn, þá sá ég að Vaskur
“minn” er kominn í bæinn.. úff hvað það er erfitt að sjá hann- en
samt svo gott! Ég fékk hann aðeins lánaðan til að leyfa honum og
Garpi að hittast.. þeim þótti það sko ekki leiðinlegt! Ég skilaði
honum svo aftur þegar þeir byrjuðu að hommast- það er svo skondið
að fylgjast með þeim, heheh
en ég hugsa
að ég fari með þá út úr bænum og leyfi þeim að leika almennilega á
morgun ef ég fæ Vaskinn lánaðan. ..
En nú er ég búin að skrifa lengsta
bloggið mitt hingað til, og efast ég um að nokkur nenni að lesa
alla þessa þvælu!
Ég set hér nokkrar myndir frá helginni,
en myndasíðan mín er öll í vinnslu... það verður því hellingur af
myndum sem koma inn fljótlega
(enda kominn
tími til að maður sinni þessu almennilega!)
hér koma nokkur sýnishorn frá helginni- njótið vel 

Liv og Sigurlaug (systur mínar) á bryggjunni á Patró

pabbi og Hafdís frænka... mjög hress að vanda
Brynja Liv sys og Elsa
vinkona hennar- þær fengu augljóslega nammi á Patró
Tab 22 tryllti lýðinn!

Og Gunnar frændi tók lagið- mér finnst hann alltaf lang
flottastur 

Leiknir og Sirry sæt saman! ótrúlega gaman að hitta Sirry aftur


Sandra og Friðgeir á Hafstraumum

Komin á ball- "loftur" (karitas) og Sandra að knúsast 

Hressar skvísur- ekkert svaka sjúskaðar ennþá

Við Karitas- eiturhressar 

Maggý skvísa í klikkuðu stuði 

Loftur vildi líka dansa!

Söndru vantaði meira hársprey eftir ballið- Halli duglegur að
hjálpa 

Sandra, Friðgeir og bróðir hans... ekki man ég nu hvað hann
heitir!

Var Indriða kalt eftir að okkur var hent út úr partyinu?? hmm..


Sirrý og Halli- lang sætust 

Svaka dúlló 

Gvöð- það var svo fyndið þegar við fórum bakvið hús að pissa!!!
einhverjir úr kílómetra fjarlægð öskruðu á okkur "pissa-pissa"...
það þurfti ekki mikið til að gleðja okkur stöllurnar! 

Núna var kominn tími til að fara heim- orðnar vel sjúskaðar
-
Jæja, ég læt þetta nægja í bili! takk fyrir frábæra helgi
elskurnar mínar! Ég skemmti mér ÞVÍLÍKT vel!
kv. Olga Rannveig